14.10.2007 | 20:29
Sama rassgatið.
Ég ætla að láta þetta vera síðasta bloggið mitt í bili um stjórnmál. Það virðist svo sem að enginn stjórnmálamaður, hvar í flokki sem hann er, hafi nokkra löngun til þess að hrista af sér það slyðruorð, að það sé sama rassgatið undir þeim öllum.
Nýi meirihlutinn mun gefa auðmönnum REI og allt sem því fylgir. Að auki mun þessi meirihluti finna feitt starf handa Alfreð. Bingi er búinn að vera í stjórnmálum og er það þess vegna hans akkur að gefa sem mest af auðlindunum. Hann fær svo vinnu hjá þeim að loknu kjörtímabilinu.
Þessi meirihluti mun sýna það og sanna að það er sama rassgatið á öllum stjórnmálamönnum. Spillingin þrífst sem aldrei fyrr og afleiðingarnar engar.
Athugasemdir
Komdu margberrassaður, gaman að sjá þig hér. Þú ert kannski að spá hver ég er en ég og Helga systir þín vorum bestu vinkonur í grunnskóla og ég eyddi hálfri æskunni minni í Giljaselinu. Lísa sem er blogg vinur þinn var sem sagt með okkur í skóla og ég raskt á nafnið þitt hjá henni. Eníhú. Gaman að vita að þú ert á lífi og allt það. Bloggið þitt um aulahúmors kommentið frá Ómari var sjúklega fyndið,,, Er ég þá auli að finnast það fyndið?? Kveðja Helga Dóra sem man ennþá eftir flottu lagi sem þú spilaðir á píanó fyrir okkur Helgu....
Helga Dóra (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 21:26
Sæll Hjalt þú varst góður á bylgjunni um daginn í gáfnaljósinu
Kveðja
Guðjón
Guðjón Ólafsson, 20.10.2007 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.