29.12.2007 | 16:44
Reka þá alla.
Það fer ekki á milli mála að menn eru ekki að standa sig í starfi, ef árangur vinnu ársins er 0.
Allir alvöru atvinnurekendur myndu ekki sætta sig við það, að framlegð starfsmanns væri 0%.
Hvað er þetta hyski að gera í vinnunni? Allavega ekki að vinna vinnuna sína.
Ávöxtun lífeyrissjóða á núlli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvernig stendur á þessari svokölluðu "neikvæðu ávöxtun"? Sem er í raun afar fyndið orðskrípi. Ég vissi ekki betur en að lífeyrissjóðirnir væru allt í öllu á verðbréfaþingi; að leika sér að okkar blóði, svita og tárum. Samt virðast allir græða þarna nema þeir? Skrýtin frétt í lok ársins...en samt eitthvað svo kunnugleg. Peningamenn hafa fengið svigrúm frá stjórnvöldum til að leika sér eftir eigin geðþótta og ulla framan þjóðina. Svo fá pólítíkusarnir jólakossa í póst ef ekki eitthvað meira.
Kristján (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 17:04
Hvað sem vinnuframlagi líður, þá óska ég þér og öllu þínu hyski Gleði og gæfu á nýju ári og takk fyrir the old days
Kjartan Pálmarsson, 2.1.2008 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.