17.9.2008 | 18:02
Grímulaus hroki.
Mér finnst gaman að sjá grímulausan hroka Össurar Skarphéðinssonar, sem birtist í eftirfarandi ummælum hans.
Hann á ekki að láta öfgamennina í Frjálslynda flokknum niðurlægja sig með því að hrekjast úr embætti þingflokksformanns."
Ef miðstjórn og þingflokkur Frjálslynda flokksins vill ekki að Kristinn sé þeirra þingflokksformaður, þá hefur hann ekkert að gera í því embætti. Þetta heitir lýðræði. Orð sem Össur Skarphéðinsson og fleiri hrokabelgir á Alþingi Íslendinga fyrirlíta.
Hins vegar væri það sterkur leikur hjá Kristni Gunnarssyni að ganga í Samfylkinguna. Sterkur leikur að því leyti að fylgishrun yrði hjá Samfylkingu. Hann á líka vel þar heima, í pöpulistaflokki dauðans.
Össur býður Kristin H. velkominn í Samfylkinguna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Ekki var blessuðu víninu þar um að kenna", sagði hann Marka-Leifi minn forðum þegar eitthvað fór úr böndunum í réttunum.
En er einhver munur á Össuri fullum og ófullum?
Árni Gunnarsson, 17.9.2008 kl. 18:30
Þetta er flott framtak hjá Össuri, Takk fyrir það Össur.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 17.9.2008 kl. 23:14
Ætli það sé hægt að fá flýtimeðferð á þessu hjá Össuri?
Halla Rut , 18.9.2008 kl. 14:57
Menn hafa fullt leyfi til að hafa hinar ýmsustu skoðanir á skoðunum Össurar Skarphéðinssonar. Þær vekja allavega upp skemmtilegar umræður eins og þessar hér.
Samúð.
Jón Halldór Guðmundsson, 22.9.2008 kl. 13:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.