Lítil saga úr svefnherbergi.

Það var kvöld eitt að við hjónin höfðum lagst til hvílu fyrir nóttina að konan varð vör við að ég snerti hana á mjög óvenjulegan hátt.

Fyrst renndi ég hendinni yfir axlirnar á henni og efrihluta baksins.

Síðan renndi ég hendinni mjög létt yfir brjóst hennar .

Þá hélt höndin varlega niður með síðunni og yfir magann og síðan niður með síðunni hinu megin niður að mitti. 

Ég þuklaði síðan mjöðm hennar, fyrst öðru megin og síðan hinumegin. Hönd mín fór síðan niður eftir lærunum utanverðum.

Hönd mín strauk síðan vinstra lærið varlega að innanverðu og eins við hægra lærið.

Þegar þarna var komið sögu, var hjartsláttur konunnar orðinn örari og hún titraði aðeins og hagræddi sér í rúminu.

Þá hætti ég skyndilega og sneri mér yfir á hina hliðina í rúminu.

"Af hverju ertu hættur" hvíslaði konan másandi. 

Ég hvíslaði til baka

"Búinn að finna fjarstýringuna"!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

, gott ef þetta hefur ekki komið fyrir mig einhverntíma

Hallgrímur Óli Helgason, 12.10.2007 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband